Áatal

Forfeður Kristínar Magnúsdóttur

1. grein
1. Magnús Magnússon, f. 3. nóvember 1812, Munaðarnesi, d. 19. júní 1883, Byrgisvík, tvíkvæntur, fyrri kona hans var Ólöf Andrésdóttir, móðir Kristínar, (sjá 2. grein), seinni kona hans var Ingibjörg Pálsdóttir
Magnús var bóndi í Reykjarfirði 1843-65. Var síðan húsmaður á Kambi um hríð, en bjó síðast í Byrgisvík og dó þar.
Talinn allvel að sér.
(Jón Guðnason 1955, bls. 461)
(Manntal 1816 - Strandasýsla)

2. Magnús Bjarnason, f. 4. janúar 1788, d. 14. maí 1863, tvíkvæntur, fyrri kona hans var Guðrún Þorsteinsdóttir (sjá 3. grein), móðir Magnúsar, sú seinni var Helga Ásgrímsdóttir.
Magnús var bóndi í Byrgisvík 1813-39. Bjó svo í Reykjarfirði til 1843, en var eftir það húsmaður í Norðurfirði og víðar.
"Gestrisinn, sæmilega þenkjandi."
(Jón Guðnason 1955, bls. 441)
(Manntal 1816 - Strandasýsla)

3. Bjarni Bjarnason, tvíkvæntur, seinni kona hans, Þjóðhildur Andrésdóttir (sjá 4. grein), var móðir Magnúsar.
(sjá 3. grein 3 í áatali Guðbrandar)

2. grein
1. Ólöf Andrésdóttir, f. um 1809, Asparvík, d. 15. febrúar 1891, gift Magnúsi Magnússyni, fyrri kona hans. (sjá 1. grein)
(Jón Guðnason 1955, bls. 461)
(Manntal 1816 - Strandasýsla)

2. Andrés Guðmundsson (sjá 2. grein 3 í áatali Guðbrandar), kvæntur Kristínu Magnúsdóttur (sjá 4. grein í áatali Guðbrandar)
Fyrsti sameiginlegi forfaðir Guðbrandar og Kristínar, afi Guðbrandar og móðir Kristínar voru því systkyn.

3. grein
2. Guðrún Þorsteinsdóttir, f. um 1790, Kjörvogi, d. 8. maí 1843, gift Magnúsi Bjarnasyni, fyrri kona hans. (sjá 1. grein 2)
Nefnd "yngri". "Stórlynd, þó greiðug; nokkurn veginn að sér."
(Jón Guðnason 1955, bls. 441, 461)
(Manntal 1816 - Standasýsla)

3. Þorsteinn Guðbrandsson, f. um 1733, d. 16. nóvember 1799, fjórkvæntur, um fyrstu konur hans er ókunnugt, nema að önnur hét Margrét; börn dóu ung. Þriðja kona hans hét Guðrún Pálsdóttir, fjórða kona hans var Ólöf Sigurðardóttir, móðir Guðrúnar. (sjá 5. grein)
Þorsteinn fluttist úr Miðfirði eða Hrútafirði um 1770 norður að Felli í Kollafirði [Fellshreppi]. Var þá ekkjumaður; hafði verið tvíkvæntur. Bjó á Felli (efra) og Þrúðardal í 5 ár. Fluttist Þá að Kjörvogi, [Árneshreppi] og bjó þar til æviloka.
Talinn hegða sér klóklega, lítt læs, en annars sæmilega að sér.
(Jón Guðnason 1955, bls. 457-8)

4. Guðbrandur Arason, f. um 1701, kvæntur Ólöfu Þorsteinsdóttur (sjá 6. grein)
Guðbrandur var bóndi á Fitjum í Miðfirði, síðast á Gillastöðum í Laxárdal.
(Jón Guðnason 1955)
(Manntal 1703)

5. Ari Guðmundsson, f. um 1665, kvæntur Ólöfu Gunnlaugsdóttur (sjá 7. grein).
Ari og Ólöf búa á Búrfelli, Torfustaðahreppi 1703 með fjögur börn sín.
Ari var þekktur sem Ari "illi".
(Manntal 1703)
(Espólín 3723)
(Friðrik Skúlason bréf 11. febrúar 2001)

6. Faðir Ara er óþekktur en móðir hans var Guðrún Aradóttir (sjá 8. grein)
(Manntal 1703)
(Espólín 3723)
(Friðrik Skúlason bréf 11. febrúar 2001)

4. grein
3. Þjóðhildur Andrésdóttir, gift Bjarna Bjarnasyni, fyrri kona hans. (sjá 1. grein 3)
Húsfreyja á Eyjum og Kaldbak.
(Jón Guðnason 1955, bls. 441)

4. Andrés Jónsson.
Tilgáta um að hann sé faðir Þjóðhildar. Bóndi í Byrgisvík.
(Friðrik Skúlason bréf 11. febrúar 2001)

5. grein
3. Ólöf Sigurðardóttir, f. um 1748, d. 18. júlí 1803, gift Þorsteini Guðbrandssyni, fjórða kona hans. (sjá 3. grein 3)
Ólöf bjó á Kjörvogi til æviloka, en "deyði af langvarandi vesöld og fæðuskorti".
(Jón Guðnason 1955)

4. Sigurður Ásgrímsson, f. um 1720, d. 23. nóvember 1790, kvæntur Sæunni Helgadóttur, f. um 1725, d. 14. júní 1803.
Sigurður og Sæunn bjuggu á Kambi 1782 (og fyrr) og til 1789.
Sigurður var talinn vel að sér.
Tilgáta að Ásgrímur Halldórsson sé faðir Sigurðar.
(Jón Guðnason 1955)

5. Ásgrímur Halldórsson, f. um 1682, kvæntur Guðrúnu Hallvarðsdóttur, f. 1697.
Ásgrímur var bóndi á Krossnesi 1735. Var á Gjögri 1703, á vist með móður sinni, Guðrúnu Þorsteinsdóttur. Kona ókunn.
(Jón Guðnason 1955)
(Manntal 1703)

6. , d. fyrir 1703, kvæntur Guðrún Þorsteinsdóttir, f. um 1660.
Guðrún var bústýra á Gjögri, Trekyllisvíkurhreppi 1703.
(Manntal 1703) (Espólín 2951) (Ættir Austur-Húnvetninga 416) (Friðrik Skúlason bréf 11. febrúar 2001)

6. grein
4. Ólöf Þorsteinsdóttir, f. um 1699, gift Guðbrandi Arasyni (sjá 3. grein 4)
(Jón Guðnason 1955)
(Manntal 1703)

5. Þorsteinn Bjarnason, f. um 1663, kvæntur Hólmfríði Jónsdóttur, f. um 1664.
Þorsteinn og Hólmfríður bjuggu á Króksstöðum, Torfustaðahreppi 1703.
(Manntal 1703)

7. grein
5. Ólöf Gunnlaugsdóttir, f. um 1662, gift Ara Guðmundssyni (sjá 3. grein 5)
Húsfreyja á Búrfelli 1703.
(Manntal 1703)
(Espólín 3738)
(Friðrik Skúlason bréf 11. febrúar 2001)

6. Faðir Ólafar er óþekktur er móðir hennar var Halldóra Sveinsdóttir.
(Espólín 3738)
(Friðrik Skúlason bréf 11. febrúar 2001)

7. Sveinn Jónsson, bóndi á Ytri-Völlum.
(Espólín 3738)
(Friðrik Skúlason bréf 11. febrúar 2001)

8. grein
6. Guðrún Aradóttir, móðir Ara Guðmundssonar (sjá 3. grein 6)
(Espólín 3723)
(Friðrik Skúlason bréf 11. febrúar 2001)

7. Ari Jónsson, bóndi á Rófu í Miðfirði.
(Espólín 3723)
(Friðrik Skúlason bréf 11. febrúar 2001)

Til baka á ættarsíðuna
Til baka á aðalsíðu