|
Áatal
|
|
Forfeður Guðbrandar Guðbrandssonar
|
|
1. grein
|
1.
|
Guðbrandur Jónsson, f. 1828, Kjós, d. 30. janúar 1860, tvíkvæntur. Fyrri kona
hans var Margrét Magnúsdóttur (sjá 2. grein), móðir
Guðbrandar. Seinni kona hans var Una
Þorsteinsdóttir.
Guðbrandur var húsmaður og bóndi í Kjós 1854-58. Síðast vinnumaður á Kambi.
(Jón Guðnason 1955, bls. 457-8)
|
|
2.
|
Jón Arngrímsson, f. 20. september 1792, d. 15. mars 1842, kvæntur Guðrúnu
Þórðardóttur.
Jón var frá Miðhúsum í Kollafirði. Hann var vinnumaður á Ósi í Steingrímsfirði 1824,
giftur vinnumaður á Brimilsvöllum undir Jökli [Snæfellsnesi] 1835 og á Rifi
[Snæfellsnesi] 1840. Drukknaði 1842.
(Jón Guðnason 1955, bls. 208, 457-8)
(Björn Magnússon 1981, bls 51)
Allar upplýsingar um Guðrúnu væru vel þegnar.
|
|
3.
|
Arngrímur Arngrímsson, f. um 1752, d. fyrir 1801, kvæntur Margréti
Gísladóttur (sjá 3. grein).
Arngrímur var bóndi á Miðhúsum í Kollafirði 1791-92.
(Jón Guðnason 1955, bls. 208)
(Björn Magnússon 1981, bls 51)
(Friðrik Skúlason bréf 11. febrúar 2001)
|
|
4.
|
Arngrímur Jónsson, d. fyrir 1756, kvæntur Guðlaugu Jónsdóttur, d. 1791,
fyrri maður hennar.
(Friðrik Skúlason bréf 11. febrúar 2001)
|
|
|
2. grein
|
1.
|
Margrét Magnúsdóttir, f. um 1830, Veiðileysu, d. 30. júlí 1857, gift
Guðbrandi Jónssyni (sjá 1. grein), fyrri kona
hans.
(Jón Guðnason 1955, bls. 457-8)
|
|
2.
|
Magnús Andrésson, f. 20. ágúst 1806, Byrgisvík, Árnessókn, d. 11. apríl 1863,
kvæntur Margréti Bjarnadóttur (sjá 4. grein).
Bóndi í Veiðileysu 1828-51. Bjó síðan í Kjós til æviloka.
"Skikkanlegur, vel að sér".
(Jón Guðnason 1955, bls. 444-5)
|
|
3.
|
Andrés Guðmundsson, f. 1776, Geirmundarstöðum á Skarðsströnd, Dalasýslu, d.
24. júní 1837, kvæntur Kristínu Magnúsdóttur (sjá 5.
grein).
Mun hafa byrjað búskap í Byrgisvík 1804. Bjó síðan í Asparvík og Reykjarfirði. Er í
Reykjarfirði 1816. Bóndi
í Veiðileysu frá því um 1821 til æviloka.
Borið gott orð og talinn vel að sér.
(Jón Guðnason 1955, bls. 461)
(Manntal 1816 - Strandasýsla)
|
|
4.
|
Guðmundur Jónsson, tvíkvæntur, fyrri kona hans var Ragnhildur
Magnúsdóttir, móðir Andrésar.
Guðmundur og Ragnhildur bjuggu í Bjarneyjum.
(Eylenda II, bls. 117)
(Friðrik Skúlason bréf 11. febrúar 2001)
|
|
|
3. grein
|
3.
|
Margrét Gísladóttir, f. 1750 eða 1752, gift Arngrími Arngrímssyni
(sjá 1. grein 3).
(Friðrik Skúlason bréf 11. febrúar 2001)
|
|
4.
|
Gísli Sveinbjarnarson, kvæntur Guðrúnu Gunnarsdóttur
Gísli og Guðrún bjuggu á Hvallátrum.
(Friðrik Skúlason bréf 11. febrúar 2001)
|
|
|
4. grein
|
2.
|
Margrét Bjarnadóttir, f. um 1807, Eyrum í Kaldrananesshreppi, d. 12. október
1861, gift Magnúsi Andréssyni (sjá 2. grein 2).
(Jón Guðnason 1955, bls. 444-5)
|
|
3.
|
Bjarni Bjarnason, f. um 1762, d. 15. maí 1832, tvíkvæntur. Fyrri kona hans var
Þjóðhildur Andrésdóttir (sjá 4.
grein í áatali Kristínar), sú seinni var Ólöf Jónsdóttir, móðir
Margrétar (sjá 6. grein).
Bjarni var ráðsmaður í Eyjum um 1800 og bóndi þar fram yfir 1820, en síðan á
Kaldbak.
(Jón Guðnason 1955, bls. 441, 444-5)
(Manntal 1835)
(Friðrik Skúlason bréf 11. febrúar 2001)
|
|
|
5. grein
|
3.
|
Kristín Magnúsdóttir, f. um 1784, Gröf í Bitrufirði, d. 23. maí 1844, gift
Andrési Guðmundssyni (sjá 2. grein 3).
Kristín var nefnd yngri.
(Jón Guðnason 1955)
(Manntal 1816 - Strandasýsla)
|
|
4.
|
Magnús Ólafsson, f. um 1752, d. 30. september 1820, Veiðileysu, kvæntur
Guðrúnu Guðmundsdóttur (sjá 7. grein).
Magnús var bóndi í Gröf, Óspakseyrarhreppi, 1781-85. Var lengi síðar vinnumaður á
Broddanesi, Fellshreppi, en dó í Veiðileysu.
(Jón Guðnason 1955)
|
|
5.
|
Ólafur Hallsson, f. 1722, d. 3. nóvember 1788, kvæntur Kristínu
Pétursdóttur (sjá 8. grein).
Bóndi á Óspakseyri frá því fyrir eða um 1770 til 1780. Bóndi í Gröf 1780-81,
síðan húsmaður og bóndi á Óspakseyri til æviloka.
"Guðhræddur, vel kunnandi".
(Jón Guðnason 1955)
|
|
6.
|
Hallur Björnsson, kvæntur Guðrúnu Þorsteinsdóttur (sjá 9. grein).
Nefndur Barna-Hallur. Bóndi á Þóreyjarnúpi í Húnavatnssýslu.
(Jón Guðnason 1955)
|
|
7.
|
Björn Þorleifsson, f. 1656, kvæntur Ólöfu Sigurðardóttur (sjá 10. grein).
Björn var bóndi og lögsagnari á Guðlaugsstöðum í Blöndudal.
Björn og Ólöf bjuggu á Guðlaugsstöðum 1703.
(Espólín 1178)
(Ættir Austur-Húnvetninga 163.6)
(Víkingslækjarætt)
(w3ætt)
(Friðrik Skúlason bréf 11. febrúar 2001)
|
|
8.
|
Þorleifur Ólafsson, d. október 1688, kvæntur Þórunni Kortsdóttur (sjá
11. grein).
Bóndi í Finnstungu (Sölvatungu), síðar prestur í Blöndudalshólum.
(Víkingslækjarætt)
(w3ætt)
|
|
9.
|
Ólafur Guðmundsson, kvæntur Steinunni Þorleifsdóttur (sjá
12. grein).
Bóndi í Finnstungu.
(Víkingslækjarætt)
(w3ætt)
|
|
10.
|
Guðmundur Gíslason, kvæntur Guðrúnu Egilsdóttur, húsmóður í
Finnstungu, sögð dóttir Egils Grímssonar, en það er vafasamt.
Bóndi í Finnstungu.
(Víkingslækjarætt)
(w3ætt)
|
|
11.
|
Gísli Jónsson, f. 1490, kvæntur Sigríði Brandsdóttur (sjá
13. grein).
Bóndi og lögréttumaður á Marðarnúpi í Vatnsdal, getið 1535-1542.
(Víkingslækjarætt)
(w3ætt)
|
|
12.
|
Jón Sigurðsson, d. 1520.
Bóndi á Marðarnúpi og Undirfelli í Vatnsdal.
(Víkingslækjarætt)
(w3ætt)
|
|
|
6. grein
|
3.
|
Ólöf Jónsdóttir, f. um 1761, Broddadalsá, d. 6. júlí 1843, þrígift. Þriðji
maður hennar var Bjarni Bjarnason (sjá 4. grein 3),
seinni kona hans.
Ólöf var húsfreyja í Eyjum.
(Jón Guðnason 1955)
(Manntal 1835)
(Friðrik Skúlason bréf 11. febrúar 2001)
|
|
4.
|
Jón Ólafsson, f. 1715, d. apríl 1784, kvæntur Ólöfu Kráksdóttur (sjá 14. grein).
Ætt Jóns óviss. Jón var bóndi í Steinadal 1759-63, bóndi í Hlíð 1763-73. Síðan bóndi
á Broddadalsá til æviloka. Jón og Ólöf eignuðust fleiri börn sem dóu ung, sex
börn komust til fullorðins ára.
(Jón Guðnason 1955)
|
|
|
7. grein
|
4.
|
Guðrún Guðmundsdóttir, f. um 1754, d. 22. ágúst 1799, gift Magnúsi
Ólafssyni (sjá 5. grein 4).
(Jón Guðnason 1955)
|
|
5.
|
Guðmundur Mikaelsson, f. 1719, d. 7. nóvember 1789, kvæntur Kristínu
Jónsdóttur, f. um 1724, d. 3. nóvember 1777.
Guðmundur var bóndi á Þórustöðum frá 1757 (eða fyrr) til 1787.
"Ráðvandur, vel að sér".
Tilgáta að hann sé sonur Mikaels Guðmundssonar, sem bjó í Tjaldanesi 1735.
(Jón Guðnason 1955)
|
|
6.
|
Mikael Guðmundsson, f. um 1694.
Bjó í Tjaldanesi 1735. Ómagi í Skarðastrandarhreppi 1703.
(Jón Guðnason 1955)
(Manntal 1703)
|
|
|
8. grein
|
5.
|
Kristín Pétursdóttir, f. um 1716, d. 17. nóvember 1782, gift Ólafi
Hallssyni (sjá 5. grein 5).
(Jón Guðnason 1955)
|
|
6.
|
Pétur Pétursson, kvæntur Guðrúnu Ólafsdóttur, f. 1683.
Pétur var frá Neðra-Núpi í Miðfirði. Meðal barna Péturs og Guðrúnar voru
Þorgerður, Jón, Pétur og Kristín.
(Jón Guðnason 1955)
(Ættir Austur-Húnvetninga 192.2)
(Friðrik Skúlason bréf 11. febrúar 2001)
|
|
7.
|
Pétur Þorsteinsson, kvæntur Guðrúnu Pétursdóttur.
Pétur og Guðrún bjuggu á Torfustöðum.
(Ættir Austur-Húnvetninga 192.2)
(Friðrik Skúlason bréf 11. febrúar 2001)
|
|
|
9. grein
|
|
10. grein
|
7.
|
Ólöf Sigurðardóttir, f. 1654, gift Birni Þorleifssyni
(sjá 5. grein 7).
Húsmóðir á Guðlaugsstöðum.
(w3ætt)
(Friðrik Skúlason bréf 11. febrúar 2001)
|
|
8.
|
Sigurður Bergþórsson, kvæntur Hallóttu
Líklega bóndi í Hjaltadal.
(w3ætt)
|
|
9.
|
Bergþór Sæmundsson, f. um 1591, d. 1647.
Lögréttumaður og bóndi í Geldingaholti í Seyluhreppi.
(w3ætt)
|
|
10.
|
Sæmundur Kársson, f. 1556, d. 19. júlí 1638, kvæntur Ragnheiði
Sigurðardóttur (sjá 15. grein).
Prestur í Glaumbæ frá 1591.
(w3ætt)
|
|
11.
|
Kár Sæmundsson
Bóndi, óvíst hvar.
(w3ætt)
|
|
12.
|
Sæmundur Símonarson, d. 1541, kvæntur Guðrúnu Einarsdóttur.
Lögsagnari í Þingeyjarsýslu. Óvissa er um faðerni hans.
(w3ætt)
|
|
|
11. grein
|
8.
|
Þórunn Kortsdóttir, gift Þorleifi Ólafssyni
(sjá 5. grein 8).
Húsmóðir í Blöndudalshólum.
(w3ætt)
|
|
9.
|
Kort Þormóðsson, f. um 1594, kvæntur Þórunni Hákonardóttur (sjá 16. grein).
Klausturhaldari, bjó í Skógum undir Eyjafjöllum.
(w3ætt)
|
|
10.
|
Þormóður Kortsson, f. um 1570, á lífi 1624, kvæntur Höllu
Grímsdóttur (sjá 17. grein).
Klausturhaldari og lögréttumaður, bjó á Kirkjubæ á Síðu.
(w3ætt, ST1)
|
|
11.
|
Kort Lýðsson.
Kaupmaður frá Hamborg (Kurt Lydersen).
(w3ætt, ST1)
|
|
|
12. grein
|
9.
|
Steinunn Þorleifsdóttir, gift Ólafi Guðmundssyni
(sjá 5. grein 9).
Húsmóðir í Finnstungu.
(w3ætt)
|
|
10.
|
Þorleifur Bjarnason, kvæntur Kristínu Árnadóttur (sjá 18. grein).
Bóndi að Fellsenda.
(w3ætt)
|
|
11.
|
Bjarni Sumarliðason, Tvíkvæntur. Fyrri kona hans og móðir Þorleifs var
Guðrún Guðmundsdóttir (sjá 19. grein) og sú seinni
var Gyríður Þorláksdóttir.
Bóndi að Fellsenda í Dölum.
(w3ætt)
|
|
12.
|
Sumarliði Jónsson.
(w3ætt)
|
|
13.
|
Jón Arnbjarnarson.
(w3ætt)
|
|
|
13. grein
|
11.
|
Sigríður Brandsdóttir, gift Gísla Jónssyni
(sjá 5. grein 11).
Húsfreyja á Marðarnúpi í Vatnsdal.
(w3ætt, FÞJ)
|
|
12.
|
Brandur Ólafsson, f. 1460, kvæntur Þorgerði Þórðardóttur
(sjá 20. grein).
Bóndi í Sölvatungu og Lögréttumaður í Húnaþingi, getið 1497-1540.
(w3ætt)
|
|
13.
|
Ólafur Sölvason.
Bóndi í Finnstungu.
(w3ætt)
|
|
|
14. grein
|
4.
|
Ólöf Kráksdóttir, f. um 1730, d. 25. febrúar 1812, gift Jóni Ólafssyni
(sjá 6. grein 4).
Húsfreyja í Steinadal, Hlíð og Broddadalsá.
(Jón Guðnason 1955)
|
|
5.
|
Krákur Einarsson, f. 1666, kvæntur Ólöfu Guðmundsdóttur, f. 1665.
Krákur og Ólöf bjuggu á Stöpum [eða Stapakoti] á Vatnsnesi.
(Jón Guðnason 1955)
(Manntal 1703)
|
|
|
15. grein
|
10.
|
Ragnheiður Sigurðardóttir, d. 28. desember 1623, gift Sæmundi Kárssyni
(sjá 10. grein 10).
Húsmóðir í Glaumbæ.
(w3ætt)
|
|
11.
|
Sigurður Jónsson, d. 16. september 1602, kvæntur Guðnýju Jónsdóttir
(sjá 21. grein).
Sýslumaður á Reynistað í Skagafirði.
(w3ætt)
|
|
12.
|
Jón 'ríki' Magnússon, f. 1480, d. 1564 aldraður úr sárasótt, tvíkvæntur.
Fyrri kona hans og móðir Sigurðar var Ragnheiður Pétursdóttir (sjá 22. grein). Seinni kona
hans var Guðný Grímsdóttir og var hann seinni maður hennar.
Lögréttumaður úr Þingeyjarþingi 1540-51. Stórbóndi og auðugur á Svalbarði við
Eyjafjörð, hafði einnig bú á Skriðu í Reykjadal.
(Þorsteinn Jónsson 1993)
(Haukur Hannesson 1999)
(w3ætt)
|
|
13.
|
Magnús Þorkelsson, f. 1440, d. eftir 1534, kvæntur Kristínu
Eyjólfsdóttur (sjá 23. grein).
Lögréttumaður 1484-1512. Bóndi á Grýtubakka í Höfðahverfi, Grenivík og Svalbarði
á Svalbarðsströnd, bjó síðast í Rauðuskriðu í Reykjadal. Nefndur 1477-1518.
(Þorsteinn Jónsson 1993)
(w3ætt)
|
|
14.
|
Þorkell Guðbjartsson, d. 1483, fylgikona hans og móðir Magnúsar var Þórdís
Sigurðardóttir.
Ráðsmaður á Hólum 1423, prestur í Múla í Reykjadal 1423-30, Grenjaðarstöðum 1430-40,
Helgastöðum 1440-49, Laufási við Eyjafjörð 1449-83. Prófastur um Þingeyjarsýslu og
officialis 1423 og 1432-36. Var auðmaður og mikilmenni.
(Þorsteinn Jónsson 1993)
(w3ætt)
|
|
15.
|
Guðbjartur 'flóki' Ásgrímsson, d. eftir 1391, fylgikona hans og móðir Þorkels
var Þorbjörg Þorsteinsdóttir eða Magnúsdóttir.
Prestur á Bægisá og í Laufási.
(Þorsteinn Jónsson 1993)
(w3ætt)
|
|
16.
|
Ásgrímur Guðbjartsson, f. um 1323, d. um 1400.
Prestur á Bægisá á Þelamörk í Eyjafjarðarsýslu frá því um 1343 til 1399.
(Þorsteinn Jónsson 1993)
(w3ætt)
|
|
16.
|
Guðbjartur Vermundsson.
Bóndi á Ytri-Bægisá. Björn Magnússon setur spurningarmerki við hvort hann hafi
verið Vermundsson.
(Þóra Stefánsdóttir 1971, bls. 81)
(w3ætt)
|
|
|
16. grein
|
9.
|
Þórunn 'eldri' Hákonardóttir, gift Korti Þormóðssyni
(sjá 11. grein 9).
Húsmóðir í Skógum undir Eyjafjöllum.
(w3ætt)
|
|
10.
|
Hákon Björnsson, d. 14. apríl 1643, kvæntur Sólveigu Jónsdóttur (sjá 24. grein).
Sýslumaður í Nesi við Seltjörn. Hélt hálft Rangárþing um 1594. Hefur síðan við og
við haldið Gullbringusýslu (og Kjósasýslu?) í umboði Bessastaðafógeta. Var auðmaður
og hafði á sér gott orð.
(Þorsteinn Jónsson 1993)
(w3ætt)
|
|
11.
|
Björn Gíslason, f. 1521, d. eftir 1600, kvæntur 14. júlí 1555 Málmfríði
Torfadóttur (sjá 25. grein), hún móðir Hákons, áður var
lagskona Björns Engilráð
Stígsdóttir.
Prófastur og umboðsmaður Möðruvallaklausturs, prestur í Saurbæ í Eyjafirði og
officialis.
(Þorsteinn Jónsson 1993)
(w3ætt)
|
|
12.
|
Gísli Hákonarson, f. um 1480, d. 16. mars 1560, kvæntur Ingibjörgu
Grímsdóttur (sjá 26. grein).
Lögréttumaður í Hegranesþingi 1520-1521 og aftur 1531 fram undir 1551. Bóndi á
Hafgrímsstöðum í Tungusveit í Skagafirði.
(Þorsteinn Jónsson 1993)
(Víkingslækjarætt)
(w3ætt)
|
|
13.
|
Hákon Hallsson, f. um 1440, d. eftir 1573, kvæntur Ingunni
Halldórsdóttur (sjá 27. grein).
Lögréttumaður 1495-1513, bóndi, fyrst á Höskuldsstöðum í Reykjadal og er þar nefndur
1469, síðan í Eyjafirði og loks á Vindheimum í Skagafirði.
(Þorsteinn Jónsson 1993)
(Víkingslækjarætt)
(w3ætt)
|
|
14.
|
Hallur Finnbogason, d. eftir 1447.
Bóndi á Vindheimum á Þelamörk í Eyjafirði. Kemur við bréf á árunum 1437-47.
(Þorsteinn Jónsson 1993)
(Víkingslækjarætt)
(w3ætt)
|
|
15.
|
Finnbogi 'gamli' Jónsson, d. eftir 1441.
Bóndi og sýslumaður í Ási í Kelduhverfi.
(Þorsteinn Jónsson 1993)
(Víkingslækjarætt)
(w3ætt)
|
|
16.
|
Jón 'langur' Björnsson, féll 1361 í Grundarbardaga.
Ríkishöfðingi á Stóruvöllum á Landi, svo á Myrká í Hörgárdal.
(Björn Magnússon, bls. 40)
(Víkingslækjarætt)
(w3ætt)
|
|
17.
|
Björn Þórðarson.
Bóndi á Stóruvöllum á Landi.
(Víkingslækjarætt)
(w3ætt)
|
|
18.
|
Þórður Loftsson.
Bóndi á Skarði á Landi.
(Víkingslækjarætt)
(w3ætt)
|
|
19.
|
Loftur Þórðarson.
Bóndi á Skarði á Landi.
(Víkingslækjarætt)
(w3ætt)
|
|
20.
|
Þórður Andrésson, veginn 27. september 1264.
Bóndi á Stóruvöllum.
(Víkingslækjarætt)
(w3ætt)
|
|
21.
|
Andrés Sæmundsson, f. um 1200, d. 26. maí 1268.
Bóndi á Skarði á Landi, áður goðorðsmaður í Eyvindarmúla, seinna bóndi á
Ytra-Skarði.
(Víkingslækjarætt)
(w3ætt)
|
|
22.
|
Sæmundur Jónsson, f. 1154, d. 7. nóvember 1222, þríkvæntur. Fyrsta kona hans
var Yngvildur Indriðadóttir, móðir Andrésar, önnur kona hans var Valgerður
ónsdóttir og þriðja kona hans var Þorbjörg.
Bóndi í Odda.
(Víkingslækjarætt)
(w3ætt)
|
|
23.
|
Jón 'ríki' Loftsson, f. 1124 í Noregi, d. 1. nóvember 1197, tvíkvæntur. Fyrri
kona hans var Ragnheiður Þórhallsdóttir, sú seinni var Halldóra
Brandsdóttir (sjá 28. grein), móðir Sæmunds.
Höfðingi í Odda á Rangárvöllum. Hann var mestur höfðingja og vinsælastur
Íslendinga.
(Björn Magnússon 1985)
(Víkingslækjarætt)
(w3ætt)
|
|
24.
|
Loftur Sæmundsson, f. um 1085, d. um 1163, kvæntur Þóru
Magnúsdóttur (sjá 29. grein).
Prestur í Odda á Rangárvöllum frá 1130 til 1172. Lærimeistari.
(Víkingslækjarætt)
(w3ætt)
|
|
25.
|
Sæmundur 'fróði' Sigfússon, f. 1056, d. 22. maí 1133, kvæntur Guðrúnu
Kolbeinsdóttur (sjá 30. grein).
Prestur í Odda.
(Einar Arnórsson 1948, bls. 285)
(Víkingslækjarætt)
(w3ætt)
|
|
26.
|
Sigfús Loðmundsson, kvæntur Þóreyju Eyjólfsdóttur (sjá 31. grein).
Fyrsti prestur í Odda 1050-1080.
(w3ætt)
|
|
27.
|
Loðmundur Svartsson, kvæntur Þorgerði Sigfúsdóttur (sjá 32. grein).
Bjó í Odda.
(w3ætt)
|
|
28.
|
Svartur Úlfsson, kvæntur Helga Þorgeirsdóttur (sjá 33. grein).
Bjó í Odda.
(w3ætt)
|
|
29.
|
Úlfur 'aurgoði' Jörundsson.
Bjó í Stóradal undir Eyjafjöllum.
(w3ætt)
|
|
30.
|
Jörundur Hrafnsson, tvíkvæntur. Fyrri kona hans og móðir Úlfs var Þuríður
Þorbjarnardóttir, sú síðari var Þorlaug Hrafnsdóttir.
Landnámsmaður.
(w3ætt)
|
|
31.
|
Hrafn 'heimski' Valgarðsson.
(w3ætt)
|
|
32.
|
Valgarður Vemundsson.
|
|
33.
|
Vemundur 'orðlokar' Þórólfsson.
|
|
34.
|
Þórólfur 'váganefur' Hræreksson.
|
|
34.
|
Hrærekur 'slöngvinbaugi' Haraldsson.
|
|
35.
|
Haraldur 'hilditönn', f. 655, d. 735.
Þessir síðast töldu lifðu í forneskju.
|
|
|
17. grein
|
10.
|
Halla Grímsdóttir, gift Þormóði Kortssyni
(sjá 11. grein 10).
Húsmóðir í Skógum.
(w3ætt)
|
|
11.
|
Grímur Skúlason, d. 1582, kvæntur Guðrúnu Björnsdóttur (sjá 34. grein).
Prestur í Hruna.
(w3ætt)
|
|
12.
|
Halldóra Grímsdóttir.
(w3ætt)
|
|
|
18. grein
|
10.
|
Kristín Árnadóttir, gift Þorleifi Bjarnasyni
(sjá 12. grein 10).
Húsmóðir á Fellsenda.
(w3ætt)
|
|
11.
|
Árni Björnsson, f. um 1540, d. um 1590, kvæntur Önnu Björnsdóttur (sjá
35. grein).
Bóndi á Sauðafelli í Miðdölum.
(w3ætt)
|
|
12.
|
Björn Jónsson, f. um 1506, hálshöggvinn í Skálholti 7. nóvember 1550 ásamt
föður sínum og bróður, fylgikona hans var Steinunn Jónsdóttir.
Prestur á Melstað í Miðfirði og officialis sama stað.
(Þorsteinn Jónsson 1993)
(w3ætt)
|
|
13.
|
Jón Arason, f. 1484, hálshöggvinn í Skálholti 7. nóvember 1550 ásamt
tveimur sonum sínum, fylgikona hans var Helga Sigurðardóttir.
Biskup á Hólum frá 1524 til dauðadags.
(Einar Jónsson 1953)
(Björn Magnússon 1985)
(w3ætt)
(Niðjatal
Jóns biskups Arasonar)
|
|
14.
|
Ari Sigurðsson, f. um 1450, kvæntur Elínu Magnúsdóttur.
Bóndi á Grýtu og Laugalandi í Eyjafirði.
(w3ætt)
|
|
15.
|
Sigurður Jónsson, f. um 1407, d. 1492.
Príor á Möðruvöllum í Hörgárdal 1439-1492 eða lengur.
(w3ætt)
|
|
16.
|
Jón Ólafsson, f. um 1382.
Bóndi í Hörgárdal, ágiskanir eru um ætterni hans.
(w3ætt)
|
|
|
19. grein
|
11.
|
Guðrún Guðmundsdóttir, gift Bjarna Sumarliðasini
(sjá 12. grein 11), fyrri kona hans.
Húsmóðir að Fellsenda í Dölum.
(w3ætt)
|
|
12.
|
Guðmundur Andrésson, f. 1465, síðast getið 1522, móðir Guðrúnar óþekkt,
kvæntur Jarþrúði Þorleifsdóttur.
Sýslumaður í Ásgarði, bóndi á Hafurshesti í Önundarfirði, en síðast á Felli í
Kollafirði, Strandasýslu.
(Björn Magnússon 1985, bls. 25)
(Víkingslækjarætt)
(w3ætt)
|
|
13.
|
Andrés Guðmundsson, f. um 1440, d. eftir 1522,
kvæntur 1462 Þorbjörgu Ólafsdóttur.
Valdsmaður í Strandasýslu. Lögréttumaður og bóndi á Felli í Kollafirði og síðar í Bæ
eða í Neðri Brekku á Rauðasandi.
(Víkingslækjarætt)
(w3ætt)
|
|
14.
|
Guðmundur 'ríki' Arason, f. um 1395, d. eftir 1448, Andrés launsonur hans,
móðir
óþekkt, kvæntur Helgu Þorleifsdóttur.
Valdsmaður í Strandasýslu, sýslumaður á Reykhólum, fór af landi 1448.
(Einar Jónsson 1953)
(Víkingslækjarætt)
(w3ætt)
|
|
15.
|
Ari 'ríki' Guðmundsson, f. um 1364, drukknaði 1423, tvíkvæntur. Fyrri kona
hans og
móðir Guðmundar, gift 1394, Ólöf Þórðardóttir, seinni kona hans var
Þorgerður Ólafsdóttir.
Sýslumaður á Vestfjörðum, bóndi á Reykhólum. Samkvæmt Birni Magnússyni er faðir
ókunnur.
(Víkingslækjarætt)
(w3ætt)
|
|
16.
|
Guðmundur Ormsson, kvæntur Guðrúnu Bótólfsdóttur.
Bóndi á Skriðu í Reykjadal. Samkvæmt Birni Magnússyni er faðir
ókunnur, í Reykjaætt er Guðmundur sagður Jónsson og í w3ætt er hann sagður
Eiríksson, sonur Eiríks Ísleifssonar.
(Víkingslækjarætt)
(w3ætt)
|
|
|
20. grein
|
12.
|
Þorgerður Þórðardóttir, gift Brandi Ólafssyni
(sjá 13. grein 12).
(w3ætt)
|
|
13.
|
Þórður 'tindaskrjóður'.
(w3ætt)
|
|
|
21. grein
|
11.
|
Guðný Jónsdóttir, f. um 1540, gift Sigurði Jónssyni
(sjá 15. grein 11).
Sýslumannsfrú á Reynistað.
(w3ætt)
|
|
12.
|
Jón Grímsson, f. um 1510, d. 1570, kvæntur Þóru Tómasdóttur.
Lögréttumaður og bóndi á Ökrum í Blönduhlíð.
(w3ætt)
|
|
13.
|
Grímur Jónsson, kvæntur Guðnýu Þorleifsdóttur.
Lögmaður norðan og vestan 1519-1521. Faðir óviss.
(w3ætt)
|
|
14.
|
Jón Guðmundsson, kvæntur Sesselju Sumarliðadóttur.
(w3ætt, RÆ)
|
|
|
22. grein
|
12.
|
Ragnheiður 'á rauðum sokkum' Pétursdóttir, f. um 1494, gift Jóni
Magnússyni
(sjá 15. grein 12), fyrri kona hans.
Húsfreyja á Svalbarði á Svalbarðsströnd.
(Haukur Hannesson 1999)
(w3ætt)
|
|
13.
|
Pétur Loftsson, f. 1470, d. fyrir 12. ágúst 1546 í Djúpadal í Eyjafirði,
kvæntur fyrir 1500 Sigríði Þorsteinsdóttur.
Bóndi, sýslumaður og lögréttumaður í Djúpadal í Eyjafirði (eða í Stóradal í
Dalasýslu).
(Björn Magnússon)
(w3ætt)
|
|
14.
|
Loftur 'Íslendingur' Ormsson, f. um 1440, d. um 1476 erlendis,
tvíkvæntur, fyrri kona hans eða fylgikona og móðir Péturs var Steinunn
Gunnarsdóttir, þau
skildu, seinni kona hans, gift 1470 var Gunnhildur Pétursdóttir.
Riddari og sýslumaður, bóndi á Staðarhóli í Saurbæ, Dalasýslu.
(w3ætt)
|
|
15.
|
Ormur Loftsson, f. um 1400, d. 1446, kvæntur 17. október 1434 Sólveigu
Þorleifsdóttur.
Hirðstjóri 1436. Bóndi á Staðarhóli í Saurbæ og Víðidalstungu.
(w3ætt)
|
|
16.
|
Loftur 'ríki' Guttormsson, f. um 1375, d. 1432 eða 1436, lagskona hans og
móðir Orms var Kristín Oddsdóttir, síðar kvæntur Ingibjörgu
Pálsdóttur.
Hirðstjóri, sýslumaður Eyjafjarðarsýslu, riddari og skáld á Möðruvöllum frammi í
Eyjafirði. Átti bú víðar.
(Þóra Marta Stefánsdóttir 1971, bls. 59)
(w3ætt)
|
|
17.
|
Guttormur Ormsson, f. um 1345, veginn 1380 í Snóksdal, kvæntur
Soffíu Eiríksdóttur.
Bóndi í Þykkvaskógi í Miðdölum.
(w3ætt)
|
|
18.
|
Ormur Snorrason, d. 1403, kvæntur Ólöfu Jónsdóttur.
Hirðstjóri norðar og vestan 1364, varð lögmaður 1359, bóndi á Skarði á
Skarðsströnd.
(w3ætt)
|
|
19.
|
Snorri Narfason, f. um 1260, d. 9. mars 1332, tvíkvæntur, fyrri kona hans,
nafn ókunnugt, var ættuð úr Árnessýslu, seinni kona hans var Þóra, ættuð af
suðurlandi.
Lögmaður norðan og vestan 1316-1330. Lögsögnumaður og bóndi á Skarði.
(w3ætt)
|
|
20.
|
Narfi 'yngri' Snorrason, f. 1210, d. 1284, kvæntur Valgerði
Ketilsdóttur.
Prestur á Kolbeinsstöðum í Hnappadal og síðar á Skriðu á Skarðsströnd. Getið
1259.
(w3ætt)
|
|
21.
|
Skarðs-Snorri Narfason, f. um 1175, d. 13. september 1260, kvæntur Sæunni
Tófudóttur.
Prestur á Skarði á Skarðsströnd. Átti annað bú á Reykhólum á Barðaströnd.
Auðugasti maður Vestfjarða.
(Björn Magnússon)
(w3ætt)
|
|
22.
|
Narfi Snorrason, f. um 1135, d. 1202, kvæntur Guðrúnu Þórðardóttur.
Prestur á Skarði á Skarðsströnd. Átti hálft Þórsnesingagoðorð með bróður sínum
Þorgil.
(w3ætt)
|
|
23.
|
Snorri Húnbogason, d. 1170, lagskona hans var Ingveldur Atladóttir.
Lögsögumaður 1156-70. Prestur á Skarði.
(w3ætt)
|
|
24.
|
Húnbogi Þorgilsson, kvæntur Ingveldur Hauksdóttur.
Bóndi á Skarði á Skarðsströnd. Goðorðsmaður. Ýmsar tilgátur eru um Þorgils föður
Húnboga sem raktar eru í bók Einars Bjarnasonar,
Íslenskum ættstuðlum, 1. bindi, bls 157 og áfram. Ein þeirra er rakin í Ættum
Síðupresta á bls 297, en engin þeirra verður staðfest. Sennileg tilgáta er að
faðir hans hafi verið Þorgils Húnbogason og verður hún rakin hér.
(Björn Magnússon 1985, bls. 23)
(w3ætt)
|
|
25.
|
Þorgils Húnbogason.
(w3ætt, EiM)
|
|
26.
|
Húnbogi 'sterki' Álfsson.
(w3ætt, EiM)
|
|
27.
|
Dala-Álfur Eysteinsson.
(w3ætt, EiM)
|
|
28.
|
Eysteinn 'meinfretur' Álfsson, kvæntur Þórhildi Þorsteinsdóttur.
(w3ætt, EiM)
|
|
28.
|
Álfur.
Úr Ostu.
(w3ætt, EiM)
|
|
|
23. grein
|
13.
|
Kristín Eyjólfsdóttir, gift Magnúsi Þorkelssyni
(sjá 15. grein 13).
Húsmóðir á Svalbarði á Svalbarðsströnd og víðar í Suður-Þingeyjarsýslu.
(w3ætt)
|
|
14.
|
Eyjólfur Arnfinnsson, d. 1475,
kvæntur Snælaugu Guðnadóttur.
Bóndi á Urðum í Svarfaðardal.
(Björn Magnússon 1985)
(w3ætt)
|
|
15.
|
Arnfinnur Þorsteinsson, d. 1433.
Hirðstjóri og riddari á Urðum í Svarfaðardal.
(Björn Magnússon 1985)
(w3ætt)
|
|
15.
|
Þorsteinn Eyjólfsson, d. 1403, kvæntur Arnþrúði Magnúsdóttur.
Hirðstjóri og lögmaður á Víðimýri og á Urðum í Svarfaðardal, getið 1356-1402. Sjá um
Þorstein Eyjólfsson og ætt hans í Íslenzka ættstuðla III, bls. 150 og næstu síður og
bls. 245 og áfram.
(Björn Magnússon 1985)
(w3ætt)
|
|
16.
|
Eyjólfur Arnfinnsson, ýmisst sagður kvæntur Ólöfu Þorsteinsdóttur
eða Ólöfu Björnsdóttur.
Bóndi á Urðum.
(Björn Magnússon 1985)
(Reykjaætt)
(w3ætt)
|
|
|
24. grein
|
10.
|
Sólveig Jónsdóttir, d. 1604, gift Hákoni Björnssyni
(sjá 16. grein 10).
Húsfreyja í Nesi við Seltjörn.
(w3ætt)
|
|
11.
|
Jón Marteinsson, f. um 1530, d. 1604,
kvæntur Guðbjörgu Erlendsdóttur.
Sýslumaður í Árnesþingi.
(w3ætt)
|
|
12.
|
Marteinn Einarsson, f. um 1500, d. 1576,
lagskona hans var Ingibjörg, f. um 1500, "af lágum stigum,
mannkostalítil" segir í Espólín.
Biskup í Skálholti, síðar prestur á Staðarstað og loks bóndi á Álftanesi á Mýrum.
(Espólín)
(w3ætt)
|
|
13.
|
Einar Snorrason, d. 1538, fylgikona hans og móðir Marteins, hefur verið nefnd
Ingiríður, en það er óvíst, síðar kvæntur Gróu Oddsdóttur.
Prestur og skáld á Staðastað (Stað á Ölduhrygg), nefndur 'Ölduhryggjaskáls', kemur
við heimildir 1497-1534.
(Espólín)
(w3ætt)
|
|
14.
|
Snorri Sveinsson, kvæntur Ingiríði Jónsdóttur.
Bóndi í Ytra-Skógarnesi í Miklaholtshreppi.
(w3ætt, FÞJ)
|
|
|
25. grein
|
11.
|
Málmfríður 'milda' Torfadóttir, f. um 1535, gift 14. júlí 1555 Birni
Gíslasyni
(sjá 16. grein 11).
Húsfreyja í Saurbæ í Eyjafirði.
(Þorsteinn Jónsson 1993)
(w3ætt)
|
|
12.
|
Torfi Jónsson, f. um 1510, á lífi 1566, fylgikona hans var Þórunn
Jónsdóttir.
Prestur í Saurbæ í Eyjafirði.
(Þorsteinn Jónsson 1993)
(w3ætt)
|
|
13.
|
Jón 'langur' Finnbogason, d. 1546, fylgikona hans var Rannveig
Jónsdóttir.
Prestur í Múla 1491, Príor á Möðruvallaklaustri 1524.
(Einar Jónsson 1953)
(Þorsteinn Jónsson 1993)
(w3ætt)
|
|
14.
|
Finnbogi 'Maríulausi' Jónsson, enn á lífi 1514, kvæntur 18. september 1467
Málmfríði Torfadóttur.
Lögmaður norðan og vestan 1484-1508, bóndi í Ási í Kelduhverfi.
(Einar Jónsson 1953 2520, 5840)
(Þorsteinn Jónsson 1993)
(Víkingslækjarætt)
(w3ætt)
|
|
15.
|
Jón 'Maríuskáld' Pálsson, f. um 1390, d. 1471, fylgikona hans var
Þórunn Finnbogadóttir.
Prestur að Grenjaðarstað. Ráðsmaður að Hólum í Hjaltadal
1423-1426 og 1440-1443, prófastur í Hegranesþingi 1426-1429, Þingeyjarþingi
1440-1448, officialist 1429, 1440-1444, 1458. Hélt Grenjaðarstað 1430-1432,
Breiðabólstað í Fljótshlíð 1432-40, en fékk þá aftur Grenjaðarstað og hélt til
dauðadags. Var með fremstu klerkum sinnar tíðar. Auknefni sitt fékk hann af
Maríudýrkun sinni, orti hann til hennar mörg kvæði og eru sum þeirra til enn.
(sjá einnig 26. grein 15)
(Þorgerður
Sigurðardóttir Maríulykill)
(Björn Magnússon 1985 bls. 24)
(Þorsteinn Jónsson 1993)
(Galtarætt)
(Víkingslækjarætt)
(w3ætt)
|
|
16.
|
Páll Þorsteinsson.
Líklega lögréttumaður á Víðimýri
(Víkingslækjarætt)
(w3ætt)
|
|
|
26. grein
|
12.
|
Ingibjörg Grímsdóttir, gift Gísla Hákonarsyni
(sjá 16. grein 12).
Húsfreyja á Hafgrímsstöðum í Tungusveit.
(w3ætt)
|
|
13.
|
Grímur Pálsson, f. um 1460, d. 1526, kvæntur Helgu Narfadóttur.
Sýslumaður á Þingeyjarþingi, bóndi á Möðruvöllum í Eyjafirði, laungetinn, móðir
óþekkt.
(Þorsteinn Jónsson 1993)
(w3ætt)
|
|
13.
|
Páll Brandsson, d. 1494, móðir Gríms óþekkt, kvæntur Ingibjörgu
Þorvarðsdóttur.
Sýslumaður í Vaðlaþingi, bóndi á Hofi á Höfðaströnd 1465-1472, síðan á Möðruvöllum í
Eyjafirði. "Var mikilmenni."
(Þorsteinn Jónsson 1993)
(w3ætt, ST1)
|
|
14.
|
Brandur Jónsson, f. 1420, d. 1494, kona hans með öllu ókunn.
Lögmaður norðan og vestan 1452-1478, bóndi lengstum á Hofi á Höfðaströnd, en síðan
að Mýrum í Dýrafirði, tilgáta Einars Bjarnasonar um foreldra hans, skv. öðrum
heimildum sonur Jóns Ketilssonar Pálssonar.
(Þorsteinn Jónsson 1993)
(w3ætt)
|
|
15.
|
Jón 'Maríuskáld' Pálsson (sjá 25. grein 15),
Einar bjarnason telur Jón sennilega vera faðir Brands, en móðir hans er ókunn.
(Björn Magnússon 1985 bls. 24)
|
|
|
27. grein
|
13.
|
Ingunn Halldórsdóttir, gift Hákoni Hallssyni
(sjá 16. grein 13), seinni kona hans.
(w3ætt)
|
|
14.
|
Halldór Steinþórsson
(w3ætt)
|
|
|
28. grein
|
23.
|
Halldóra Brandsdóttir, d. 1190, gift Jóni Loftssyni
(sjá 16. grein 23), seinni kona hans.
(w3ætt)
|
|
24.
|
Skegg-Brandur Þormóðsson
|
|
25.
|
Þormóður Kárason
|
|
26.
|
Kári Þormóðsson
|
|
27.
|
Þormóður Steinrauðsson
|
|
28.
|
Steinrauður Melpatriksson
|
|
29.
|
Melpatrik
|
|
|
29. grein
|
24.
|
Þóra Magnúsdóttir, d. 1175, gift Lofti Sæmundssyni
(sjá 16. grein 24), laundóttir Magnúsar.
(w3ætt)
|
|
25.
|
Magnús 'berfættur' Ólafsson, f. 1073, d. 24. ágúst 1103.
Noregskonungur frá 1093.
(Reykjaætt)
(w3ætt)
|
|
26.
|
Ólafur 'kyrri' Haraldsson, f. um 1050, d. 1093, kvæntur Þóru
Rögnvaldsdóttir.
Noregskonungur frá 1066.
(w3ætt, RÆ)
|
|
27.
|
Haraldur 'harðráði' Sigurðsson, f. 1015, féll 25. september 1066 við
Stafnfurðubryggju á Englandi, kvæntur Þóru Þorbergsdóttur.
Noregskonungur frá 1066.
(w3ætt, RÆ)
|
|
28.
|
Sigurður 'sýr' Hálfdanarson, d. 1018, kvæntur Ástu Guðbrandsdóttur.
Konungur af Upplöndum, sat í Hringaríki.
(w3ætt, RÆ)
|
|
29.
|
Hálfdan Sigurðsson.
Konungur af Upplöndum.
(w3ætt, RÆ)
|
|
30.
|
Sigurður 'hrísi' Haraldsson.
Konungur yfir Haðafylki.
(w3ætt, RÆ)
|
|
31.
|
Haraldur Hálfdanarson, f. um 850, d. 933, Sextán vetra átti hann Ásu
Hákonardóttur, síðar kvæntur Snjáfríði Svásadóttur, móður Sigurðar.
Hinn fyrsti konungur yfir öllum Noregi. Tók konungdóm tíu vetra, varð einvaldur yfir
öllum Noregi tvítugur að aldri, var alls konungur í Noregi í 70 ár.
Af Ynglingaætt.
(w3ætt, RÆ)
|
|
32.
|
Hálfdan 'svarti' Guðröðsson, d. 860, kvæntur Ragnhildi
Sigurðardóttur.
Upplendingakonungur.
Uppfrá Hálfdani er hér rakið samkvæmt Heimskringlu Snorra og nær aftur í forneskju,
sjálfsagt langt aftur fyrir Krists fæðingu.
(Flóamannasaga)
(Heimskringla)
(w3ætt)
|
|
33.
|
Goðröður 'göfugláti' Hálfdanarson, d. 821, tvígiftur.
Veiðikonungur.
(Heimskringla)
|
|
34.
|
Hálfdan 'mildi' Eysteinsson, einnig kallaður 'hinn matarilli', kvæntur Hlíf
Dagsdóttur.
Hann bjó að Holtum á Vestfeld. Hálfdan varð sóttdauður og er heygður á Borró.
(Heimskringla)
|
|
35.
|
Eysteinn 'fret' Hálfdanarson, kvæntur Hildi Eiríksdóttur.
Konungur í Raumaríki og á Vestfold. Hann drukknaði í gjörningsveðri og var
heygður á Borró.
(Heimskringla)
|
|
36.
|
Hálfdan 'hvítbeinn' Ólafsson, varð sóttdauður á Þótni, kvæntur Hildi
Eiríksdóttur.
Upplendingakonungur, ólst upp í Sóleyjum hjá Sölfa móðurbróður sínum.
(Heimskringla)
(Einar Arnórsson 1948)
(Fréttabréf Ættfræðifélagsins 3.tbl.14.útg.1996)
(w3ætt)
|
|
37.
|
Ólafur 'trételgja' Ingjaldsson, var brendur af sínum eigin mönnum á bökkum
Vænis, kvæntur Sölfu Hálfdanardóttur.
(Heimskringla)
(Fréttabréf Ættfræðifélagsins 3.tbl.14.útg.1996 bls.
13)
|
|
38.
|
Ingjaldur 'illráði' Önundarson, kvæntur Gauthildi Algautadóttur.
Konungur í Upplöndum. Hann bauð sex konungum til veislu með miklu liði og brendi
síðan allt inni.
(Heimskringla)
(Fréttabréf Ættfræðifélagsins 3.tbl.14.útg.1996 bls.
13)
|
|
39.
|
Braut-Önundur Yngvarrsson.
Hann var auðugur friðsamur og starfsamur, hann lét ryðja skóga og leggja brautir um
landið og því var hann kallaður "Braut-Önundur".
(Heimskringla)
(Fréttabréf Ættfræðifélagsins 3.tbl.14.útg.1996 bls.
13)
|
|
40.
|
Yngvarr Eysteinsson, féll í orustu við Eistlendinga.
Hann var hermaður mikill.
(Heimskringla)
(Fréttabréf Ættfræðifélagsins 3.tbl.14.útg.1996 bls.
13)
|
|
41.
|
Eysteinn Aðíslason, var brendur inni.
Konungur Svía.
(Heimskringla)
(Fréttabréf Ættfræðifélagsins 3.tbl.14.útg.1996 bls.
13)
|
|
42.
|
Aðísl Óttarrsson, kvæntur Yrsu Helgadóttur.
Konungur Svía að Uppsölum. Hann var lengi konungur og mjög auðugur; hann herjaði á
Saxland og þaðan hafði hann heim með sér Yrsu hina fögru og varð hún síðan drottning
hans.
(Heimskringla)
(Fréttabréf Ættfræðifélagsins 3.tbl.14.útg.1996 bls.
13)
|
|
43.
|
Óttarr 'vendilkráka' Egilsson.
Konungur Svía á Vendli. Hann herjaði á Danmörku og féll á Vendilsskaga; hann var
síðar kallaður Vendilkráka.
(Heimskringla)
(Fréttabréf Ættfræðifélagsins 3.tbl.14.útg.1996 bls.
13)
|
|
44.
|
Egill Aunsson.
Hann var enginn hermaður en veiðimaður mikill. Á einni veiðiför hans varð mannýgur
griðingur honum að bana.
(Heimskringla)
(Fréttabréf Ættfræðifélagsins 3.tbl.14.útg.1996 bls.
13)
|
|
45.
|
Aun 'gamli' Jörundsson.
Svíakonungur. Hann var vitur maður og blótmaður mikill. Hann átti 10 sonu, og er
hann var nokkuð kominn til aldurs, tók hann það ráð að blóta Óðni einum sona sinna
tíunda hvert ár sér til langlífis, og hét Óðinn honum bænheyrslu. Er hann hafði
fórnað þannig níu sonum sínum, var hann löngu lagstur í kör og drakk af pela sem
ungbarn. Hann fékk eigi blótað hinum tíunda.
(Heimskringla)
(Fréttabréf Ættfræðifélagsins 3.tbl.14.útg.1996 bls.
13)
|
|
46.
|
Jörundur Yngvason.
Hann var hermaður mikill, átti margar orustur; að síðustu var hann hengdur á
Jótlandi.
(Heimskringla)
(Fréttabréf Ættfræðifélagsins 3.tbl.14.útg.1996 bls.
13)
|
|
47.
|
Yngvi Alreksson.
Hann var hermaður mikill og íþróttamaður hinn mesti; hann gerði sér dátt við Beru,
konu Álfs bróður síns og hún við hann. Af þessu urðu þeir bræður hvor annars
bani.
(Heimskringla)
(Fréttabréf Ættfræðifélagsins 3.tbl.14.útg.1996 bls.
13)
|
|
48.
|
Alrekur Agnason, kvæntur Dagreiði Dagsdóttur.
Hann var hestamaður mikill, svo sem Eiríkur bróðir hans. Eitt sinn reyndu þeir hesta
sína tveir einir og börðust síðan, vopnlausir að öðru en beislunum; þeir fundust
báðir dauðir.
(Heimskringla)
(Fréttabréf Ættfræðifélagsins 3.tbl.14.útg.1996 bls.
13)
|
|
49.
|
Agni Dagsson, kvæntur Skjálft Frostadóttur.
Ríkur maður og ágætur, hermaður mikill og atgjörfismaður; hann átti Skjálf dóttur
Frosta finnahöfðingja. Skjálf hengdi Agna að síðustu í gull-hálsmeni því, er
forfeður hans höfðu átt í marga ættliði. Það skeði á Agnafit, þar sem nú er
Stokkhólmur.
(Heimskringla)
(Fréttabréf Ættfræðifélagsins 3.tbl.14.útg.1996 bls.
13)
|
|
50.
|
Dagur 'spaki' Dyggvason.
Hann skildi fuglamál.
(Heimskringla)
(Fréttabréf Ættfræðifélagsins 3.tbl.14.útg.1996 bls.
13)
|
|
51.
|
Dyggvi Dómarrsson.
Hann var hinn fyrsti, er kallaður var konungur, en allir hinir eldri voru kallaðir
dróttnar.
(Heimskringla)
(Fréttabréf Ættfræðifélagsins 3.tbl.14.útg.1996 bls.
13)
|
|
52.
|
Dómarr Dómaldsson, kvæntur Drótt Danpsdóttur.
Hann verð sóttdauður að Uppsölum og var lík hans brennt á Fýrisvöllum á bökkum
árinnar.
(Heimskringla)
(Fréttabréf Ættfræðifélagsins 3.tbl.14.útg.1996 bls.
13)
|
|
53.
|
Dómaldi Vísburrsson.
Var dróttinn eða konungur í Svíþjóð; þá var sultur og hallæri þar í landi og á þriðja
hausti drápu Svíar Dómalda og blótuðu honum sér til árferðisbótar.
(Heimskringla)
(Fréttabréf Ættfræðifélagsins 3.tbl.14.útg.1996 bls.
13)
|
|
54.
|
Vísburr Vanlandsson.
Dróttinn í Svíþjóð. Synir hans tveir brenndu hann inni.
(Heimskringla)
(Fréttabréf Ættfræðifélagsins 3.tbl.14.útg.1996 bls.
13)
|
|
55.
|
Vanlandi Sveigðisson, kvæntur Drífu Snjásdóttur.
Huld seiðkona varð honum að bana.
(Heimskringla)
(Fréttabréf Ættfræðifélagsins 3.tbl.14.útg.1996 bls.
13)
|
|
56.
|
Svegðir Fjölnisson, kvæntur Vönu.
Hann strengdi þess heit að leita Goðheims og Óðins; og í þeirri leit hvarf hann í
stein til dverga og kom eigi aftur.
(Heimskringla)
(Fréttabréf Ættfræðifélagsins 3.tbl.14.útg.1996 bls.
13)
|
|
57.
|
Fjölnir Freysson.
Hann réð fyrir Svíum og Uppsalaauð. Æfilok hans urðu þau, að hann drukknaði í
mjaðarkeri miklu neðan jarðar, er hann var að veislu mikilli hjá Friðfróða
Danakonungi í Sælundi.
(Heimskringla)
(Fréttabréf Ættfræðifélagsins 3.tbl.14.útg.1996 bls.
13)
|
|
58.
|
Yngvi-Freyr Njarðarson, kvæntur Gerði Gýmisdóttur.
Frá honum eru Ynglingar komnir. Hann reisti hof mikið að Uppsölum hinum fornu og
setti þar höfuðstað sinn. Þá hófst Uppsalaauður hinn mikli. Í Uppsölum gömlu standa
enn í dag afar-miklir haugar, nefndir eftir Óðni, Þór og Frey. Systir hans var
Freyja, blótgyðja með Ásum.
(Heimskringla)
(Fréttabréf Ættfræðifélagsins 3.tbl.14.útg.1996 bls.
13)
|
|
59.
|
Njörður 'auðgi' Yngvason.
Af Nóatúnum, hann var úr Vanaheimi; hann tók ríki eftir Óðinn sjálfan og ver á hans
dögum friður mikill. Hann lét merkja sir Óðni áður en hann dó. Svíar brenndu lík
hans og grétu mjög yfir leiði hans. Hann átti konu þá er Skaði hét, en ekki áttu þau
börn saman.
(Heimskringla)
(Fréttabréf Ættfræðifélagsins 3.tbl.14.útg.1996 bls.
13)
|
|
60.
|
Yngvi.
Tyrkjakonungur.
(Fréttabréf Ættfræðifélagsins 3.tbl.14.útg.1996 bls.
13)
|
|
|
30. grein
|
25.
|
Guðrún Kolbeinsdóttir, gift Sæmundi Sigfússyni
(sjá 16. grein 25).
Húsfreyja í Odda.
(w3ætt)
|
|
26.
|
Kolbeinn Flosason.
Af sumum talinn hafa verið lögsögumaður, en ekki nafni hans sonur Flosa
Þórðarsonar.
(w3ætt)
|
|
27.
|
Flosi Brandsson.
(w3ætt)
|
|
28.
|
Valla-Brandur Áskelsson.
Bjó á Völlum á Landi.
(w3ætt)
|
|
29.
|
Áskell Ormsson.
Húsagarði.
(w3ætt)
|
|
30.
|
Ormur 'auðgi' Úlfsson.
Landnámsmaður í Húsagarði.
(w3ætt)
|
|
|
31. grein
|
26.
|
Þórey Eyjólfsdóttir, gift Sigfúsi Loðmundssyni
(sjá 16. grein 26).
Húsfreyja í Odda.
(w3ætt)
|
|
27.
|
Eyjólfur 'halti' Guðmundsson, d. 1060 eða 1065, kvæntur Ingveldi
Hallsdóttur.
Goðorðsmaður á Möðruvöllum.
(Einar Jónsson 1953)
(Víkingslækjarætt)
(w3ætt)
|
|
28.
|
Guðmundur 'ríki' Eyjólfsson, f. 954, d. 1025, kvæntur Þorlaugu
Atladóttur.
Bóndi á Möðruvöllum.
(Einar Jónsson 1953)
(Þóra Marta Sveinsdóttir 1971 bls. 96)
(Víkingslækjarætt)
(w3ætt)
|
|
29.
|
Eyjólfur Valgerðarson, d. um 965 eða 985 á Jórunnarstöðum í Eyjafirði, kvæntur
Hallberu Þóroddsdóttur.
Bjó fyrst á Jórunnarstöðum, síðan á Möðruvöllum í Eyjafirði.
(w3ætt)
|
|
30.
|
Einar Auðunarson, kvæntur Valgerði Runólfsdóttur.
Í Saurbæ i Eyjafirði.
(w3ætt)
|
|
31.
|
Auðunn 'rotinn' Þórólfsson, kvæntur Helgu Helgadóttur.
Landnámsmaður í Saurbæ.
(w3ætt)
|
|
32.
|
Þórólfur 'smjör' Þorsteinsson.
Kom til landsins með Hrafna-Flóka.
(w3ætt)
|
|
33.
|
Þorsteinn 'skrofa' Grímsson.
(Reykjaætt)
(w3ætt)
|
|
34.
|
Grímur Kamban.
Byggði Færeyjar fyrstur norrænna manna.
(Reykjaætt)
(w3ætt)
|
|
|
32. grein
|
27.
|
Þorgerður Sigfúsdóttir, gift Loðmundi Svartssyni
(sjá 16. grein 27).
(w3ætt)
|
|
28.
|
Sigfús Elliða-Grímsson, kvæntur Halldóru Refsdóttur.
(w3ætt)
|
|
29.
|
Elliða-Grímur Ásgrímsson, kvæntur Jórunni Teitsdóttur.
(w3ætt)
|
|
30.
|
Ásgrímur Öndóttsson, kvæntur Geirhildi Eiríksdóttur.
Landnámsmaður á Glerá, Eyjafirði.
|
|
31.
|
Öndóttur 'kráka' Erlingsson, kvæntur Signýju Sighvatsdóttur.
Úr Hvinisfirði.
|
|
32.
|
Erlingur 'knýtill'.
Úr Hvinisfirði.
|
|
|
33. grein
|
28.
|
Helga Þorgeirsdóttir, gift Svarti Úlfssyni
(sjá 16. grein 28).
(w3ætt)
|
|
29.
|
Þorgeir Úlfsson.
Bóndi í Odda.
|
|
30.
|
Úlfur.
Hersir í Þelamörk.
|
|
|
34. grein
|
11.
|
Guðrún Björnsdóttir, gift Grími Skúlasyni
(sjá 17. grein 11).
Húsmóðir í Hruna.
(w3ætt)
|
|
12.
|
Björn Ólafsson, síðast getið 1567, kvæntur Margréti Arnljótsdóttur.
Prestur í Hruna frá 1554.
(w3ætt, RÆ)
|
|
|
35. grein
|
11.
|
Anna Björnsdóttir, f. 1552, d. 1642, gift Árna Björnssyni
(sjá 18. grein 11).
Húsmóðir á Sauðafelli í Miðdölum.
(w3ætt)
|
|
12.
|
Björn Hannesson, drukknaði ásamt konu sinni 1554, kvæntur Þórunni
Daðadóttur.
Lögsagnari á Rauðasandi, bóndi í Snóksdal.
(Þorsteinn Jónsson 1993)
(w3ætt, FÞJ)
|
|
13.
|
Hannes Eggertsson, d. um 1534, kvæntur um 1517 Guðrúnu
Björnsdóttur.
Riddari og hirðstjóri á Núpi í Dýrafirði. Kemur fyrst við heimildir árið 1513, en
gæti hafa komið til Íslands eitthvað fyrr. Var hirðstjóri flest ár fram undir 1524.
Hefur sett bú á Núpi í Dýrafirði árið 1517, en flytur til Hamborgar árið 1524 og
dvelur þar nokkur ár, en kemur aftur við heimildir á Íslandi 1530 og hefur dáið um
1534. Hefur verið mikilmenni og stórbrotinn.
(Þorsteinn Jónsson 1993)
(w3ætt, FÞJ)
|
|
14.
|
Eggert Eggertsson, kemur við heimildir 1479-89, hefur verið veginn að bænum
Skóginum í Víkinni og er eftirmál um vígið 1493, af því málavafstri má ráða, að ekkja
hans hefur verið hústrú Jóhanna Matthíasdóttir.
Lögmaður í Víkinni í Noregi. Aðlaður af konungi 1488. Framættir Eggerts og konu
hans, Jóhönnu eru ókunnar.
(Þorsteinn Jónsson 1993)
(w3ætt, FÞJ)
|
|
|
|
|
|